Stangarhyl 4   110 Reykjavík   Sími: 567 4142
   Forsíða
   Fréttir
   Fyrirtækið
   Hafa samband
Skoða PDF skjal
Ræstivörur leggja mikið upp úr þjónustu við viðskiptavini !

Við hjá Ræstivörum leggjum mikla áherslu á þjónustu við viðskiptavini. Við gerum okkur grein fyrir því að hraði, heiðarleg og örugg vinnubrögð skipta viðskiptavini okkar miklu máli. Við leggjum okkur fram við að mæta kröfum viðskiptavinarins.

Við vitum einnig að gæði og umhverfisvernd skiptir miklu máli, því bjóðum við eingöngu hágæða vöru sem uppfyllir ströngustu umhverfis og öryggiskröfur sem og stöðlum Evrópusambandsins.

Hafðu samband í síma 567 4142 eða með netpósti á raestivorur@raestivorur.is og við hjálpum þér eftir bestu getu.


 
Heildarlausn í umhverfisvottuðum hreinlætisvörum

Nú bjóða Ræstivörur heildarlausn í umhverfisvottuðum hreinlætisvörum. Með heildarlausn er átt við vörur í öllum helstu flokkum hreinlætisvara, allt frá hreinsiefnum til hreinlætispappírs.

Í hreinsiefnunum eru það gólfsápa, baðherbergishreinsir, alhliða hreinsiefni og uppþvottalögur frá BUZIL WERK sem eru vottaðar með Evrópska umhverfisblóminu. Handsápa og aðrar vörur frá Pro Ren sem vottaðar eru með norræna umhverfismerkinu Svaninum. Hreinlætispappírinn kemur frá Ítalíu og er vottaður með Evrópska umhverfisblóminu og nú bjóðum við líka upp á plastpoka sem eyðast í náttúrunni.

Með þessu bjóðum við síðan mikið úrval af örtrfefja klútum, moppum og áhöldum frá nokkrum framleiðendum. Með þessu skrefi stígum við lengra en fyrr í að taka þátt í þörfu verkefni sem er að vernda umhverfið og aðstoða aðra til þess líka.

Vinsamlega Smelltu hér til að skoða yfirlitsblað um vörurnar.

Skoða alla fréttina